Forsíða

facebook

Saga Laxárbakka

Gisting

Afþreying

Staðsetning

Ljósmyndir

Verðskrá

blogg

Hafðu samband

Áhugaverðir tenglar

English
Guesthouse and restaurant
Forsíða

Bookmark and Share
Velkomin á heimasíðu Laxárbakka. 

 


Laxárbakki er ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á gistingu og veitingar allan ársins hring. Laxárbakki er vel staðsett við bakka Laxár í Hvafjarðarsveit. Auk þess er það í alfaraleið þar sem það er staðsett við þjóðveg eitt, aðeins 12 km frá Akranesi og 17 km frá Borgarnesi. Stutt er að ferðast til hinna helstu ferðaþjónustustaða á suðvesturlandi þar sem Húsafell, Langjökull, Þingvellir, Hvalfjörðurinn og Snæfellsnesið eru í nánasta umhverfi.

Mikið fuglalíf er í nágrenni Laxárbakka og er því tilvalið fyrir áhugafólk um fuglaskoðun að koma og njóta útiverunnar hjá okkur.

Auk fuglaskoðunar eru frábærar gönguleiðir allt í kringum okkur eins og t.d. upp á Akrafjall, Hafnarfjall, Skarðsheiði, Skessuhorn, Heiðarhorn, Síldarmannagötur auk fjölda margra annarra skemmtilegra leiða.

 
Á Laxárbakka er gisting fyrir 36 í glæsilegum lúxusíbúðum ásamt svefnpokaplássi fyrir 18. Þar er einnig veitingarstaður sem tekur um 100 manns í sæti.

Frábær aðstaða fyrir fermingar, giftingar, ættarmót, hópefli, gönguhópa, hestahópa sem og aðra hópa sem eru á ferð um Vesturlandið.

Verið velkomin á Laxárbakka
við tökum vel á móti ykkur og aðstoðum ykkur við að gera ferðina ógleymanlega!


Vetrardagskrá Laxárbakka er undir afþreyingu!




Laxárbakki


301 Akranes
Tel:(+354) 5512783
Mobile: (+354) 8650651 / (+354) 8943153
e-mail: laxarbakki@gmail.com
Kt. 660107-1500

 

 



Forsíða
facebook
Saga Laxárbakka
Gisting
Afþreying
Staðsetning
Ljósmyndir
Verðskrá
blogg
Hafðu samband
Áhugaverðir tenglar
English
www.laxarbakki.is // Tel:(+354) 5512783 // Mobile: (+354) 8650651 - (+354) 8943153