top of page
Velkomin     Bóka núna     Herbergin     Veitingastaðurinn     Hótelið     
Um okkur     Afþreying     Hafa samband

Huggulegt sveitahótel í alfaraleið

​Laxárbakki býður upp á gistingu fyrir allt að 36 manns í glæsilegum stúdíó íbúðum. Einnig er gisting fyrir allt að 18 manns í gistiheimili.

Stúdíó íbúðirnar eru 12 talsins, 33-47 m² að stærð.  Í öllum þeirra er tvíbreitt rúm og svefnsófi og rúmar því hver íbúð allt að 4 einstaklinga. Eldhús og stofa eru samliggjandi með öllum þægindum og er baðherbergi með sturtu í hverri íbúð.  

 

Í þremur stærstu íbúðunum er þvottavél inni á baðherbergjunum en hinar hafa aðgang að sameiginlegu þvottahúsi.

Frír aðgangur er að heitum potti, sauna og interneti.

Einstakt fuglalíf er á staðnum og mikið er af góðum gönguleiðum eins og Akrafjall, Hafnarfjall, Skarðsheiði, Skessuhorn, Síldarmannagöngur, Glymur og margt fleira.

bottom of page